Gagnaöflun og rannsóknir í ferðaþjónustu
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra, hefur undirritað reglugerð nr. 20/2020, um gagnaöflun og rannsóknir í ferðaþjónustu.
Reglugerðin hefur að geyma ákvæði um miðlun upplýsinga og greiningu gagna og áframhaldandi þróun Mælaborðs ferðaþjónustunnar.
Þá er með reglugerðinni hlutverk Ferðamálastofu við gagnaöflun og rannsóknir í ferðaþjónustu skilgreint, m.a. varðandi mótun rannsóknaráætlunar sem stofnunin skal móta og láta framkvæma.
Í því skyni skal stofnunin m.a. kalla saman ráðgefandi nefnd um gagnaöflun og rannsóknir skv. tilnefningum frá hagaðilum og birta drög að rannsóknaráætlun í samráðsgátt stjórnvalda áður en hún er lögð fyrir ráðherra.