Málþing um mat á áhrifum lagasetningar
Forsætisráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið standa, þriðjudaginn 18. febrúar 2020, fyrir málþinginu Hvernig metum við áhrif laga? Aðferðafræði, verkaskipting og áskoranir.
Á málþinginu verður farið yfir fyrirkomulag mats á áhrifum lagasetningar hér á landi í samanburði við önnur lönd með sérfræðingum frá Bretlandi, Noregi og OECD. Í Bretlandi og Noregi hefur verið komið á fót sjálfstæðum nefndum sem hafa gæðaeftirlit með undirbúningsferli löggjafar. Fjallað verður um mat á mismunandi áhrifum eins og á fjármál hins opinbera, samkeppni, jafnrétti og atvinnulífið og hvernig megi samþætta rýni á ólíkum áhrifaþáttum.
Málþingið sem verður haldið á Hóteli Reykjavík Natúru að Nauthólsvegi 52 hefst kl. 9.00 með ávarpi Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, og stendur til kl. 16.30.
Málþingið fer fram á ensku og er öllum opið.
Dagskrá
Fundarstjóri: Bryndís Hlöðversdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis
9.00 - 9.15 Setningarávarp: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
9.15 - 10.45 Samspil stofnana við mat á áhrifum lagasetningar og tengsl við samráð
- Páll Þórhallsson skrifstofustjóri, forsætisráðuneytinu
- Hlynur Hreinsson hagfræðingur, fjármála- og efnahagsráðuneytinu
- Kristin Johnsrud ráðgjafi, Regelrådet í Noregi
- Philipp Aepler, aðstoðarframkvæmdastjóri Regulatory Policy Committee í Bretlandi
Umræður og viðbrögð:
- Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Hildur Eva Sigurðardóttir, forstöðumaður nefndasviðs Alþingis
10.45 - 11.00 Kaffihlé
11.00 - 12.30 Aðferðir við mat á áhrifum lagasetningar og hæfni til að standa undir kröfum
- Guðrún Þorleifsdóttir skrifstofustjóri, fjármála- og efnahagsráðuneytinu
- Stian Hervik Frantzen ráðgjafi, Regelrådet í Noregi
- Andrew Hallett ráðgjafi, Regulatory Policy Committee í Bretlandi
Umræður og viðbrögð:
- Víðir Smári Petersen lögmaður
- Heimir Skarphéðinsson lögfræðingur, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu
12.30 - 13.30 Hádegisverður
13.30 - 15.00 Áhrif á mismunandi sviðum
- Samkeppni á markaði: Ania Thiemann, sérfræðingur hjá OECD
- Jafnrétti kynjanna: Herdís Sólborg Haraldsdóttir sérfræðingur, forsætisráðuneytinu
- Fyrirtæki og atvinnulíf: Stian Hervik Frantzen, ráðgjafi, Regelrådet í Noregi,
- Áhrif á smærri fyrirtæki: Daniel Weaver, hagfræðingur, Regulatory Policy Committee, Bretlandi
Umræður og viðbrögð:
- Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
- Pétur Reimarsson, verkfræðingur á samkeppnishæfnisviði Samtaka atvinnulífsins
15.00 - 15.15 Kaffihlé
15.15 - 16.30 Áskoranir í nútíð og framtíð
- Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis
- Kristin Johnsrud ráðgjafi, Regelrådet í Noregi
- Philipp Aepler, aðstoðarframkvæmdastjóri Regulatory Policy Committee í Bretlandi
Umræður og viðbrögð:
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Jón Steindór Valdimarsson alþingismaður