Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2020 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Fimm ný verndarsvæði í byggð

Plássið á Hofsósi  - myndFE/Feykir
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur staðfest tillögur að fimm nýjum verndarsvæðum í byggð. Tilgangur slíkra svæða er að stuðla að verndun byggðar vegna svipmóts, menningarsögu eða listræns gildis þeirra. Tillögur um verndarsvæði koma frá viðkomandi sveitarfélagi en Minjastofnun Íslands veitir sveitarfélögum ráðgjöf við undirbúning tillagna og skilar einnig umsögn sinni til ráðherra. Svæðin sem um ræðir nú eru framdalurinn í Skorradal, gamli bæjarhlutinn á Sauðárkróki, vesturhluti Víkur í Mýrdal, Þórkötlustaðahverfi í Grindavík og bæjarhlutarnir Plássið og Sandurinn á Hofsósi í Skagafirði.

„Menningararfur okkar Íslendinga er fjölbreyttur og byggð svæði eru hluti hans. Verndarsvæði í byggð geta meðal annars haft sögulegt, félagslegt eða fagurfræðilegt gildi fyrir fyrri, núlifandi og komandi kynslóðir. Fyrstu verndarsvæðin voru staðfest árið 2017 og nú eru þau orðin tíu talsins. Ég hvet landsmenn til þess að heimsækja þessi svæði og kynna sér merkilega sögu þeirra og þýðingu – bæði þá og nú,“ segir ráðherra.

Um nýju verndarsvæðin:

Vesturhluti Víkur í Mýrdal: Svæðið nær frá Víkurbraut 16 í austri og tekur til húsa norðan Víkurbrautar til og með bátaskýlisins við Víkurbraut 40a, auk húsa númer 21 (Halldórsbúð), 21a, 17 (Skaftfellingabúð), 19, 11 og 11a, sem eru sunnan Víkurbrautar. Innan þessarar afmörkunar eru verslunar- og íbúðarhús frá upphafi fjölbýlismyndunar í Vík og fram til ársins 1918, auk nokkurra yngri bygginga.

Gamli bærinn á Sauðárkróki: Svæðið afmarkast að norðan af nyrsta íbúðarhúsi Sauðárkróks, að austan af Strandvegi, að sunnan af Kirkjutorgi og Kirkjuklauf (Hlíðarstíg) og að vestan af Nöfum.

Plássið og Sandurinn á Hofsósi: Svæðið er um 3 hektarar að stærð og afmarkast af Brekkunni að norðan, af brekkubrún Bakkans að austan og sjó og hafnargarði að sunnan og vestan.

Framdalur Skorradals: Svæðið afmarkast við heimatún bæjanna Háafells, Fitja, Sarps, Efstabæjar, Bakkakots og Vatnshorns. Einnig nær verndin til gömlu þjóðleiðanna sem liggja um lönd fyrrgreindra bæja. Um er að ræða fornar þingleiðir, biskupa- og prestaleiðir m.a. tengdar Fitjakirkju og Þingvöllum, gamlar verleiðir milli landshluta og leiðir til aðdrátta sem lengst af lágu til Hvalfjarðar.

Þórkötlustaðahverfi í Grindavík: Svæðið afmarkast af Austurvegi til norðurs og af túnmörkum og hlöðnum túngörðum við Slokahraun til austurs. Strandlengja Þórkötlustaðabótar afmarkar svæðið til suðurs og vesturmörkin eru við Kóngahraun við Þórkötlustaðanes.

Nánar má fræðast um verndarsvæði í byggð á vef Minjastofnunar Íslands




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta