Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2020 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nýir tímar í starfs- og tækninámi

Markmið aðgerðaáætlunar mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Samtaka iðnaðarins og Sambands íslenskra sveitarfélaga er að auka áhuga ungmenna á starfs- og tæknimenntun og þar með fjölga einstaklingum með slíka menntun á vinnumarkaði. Aðgerðaáætlunin var kynnt á fjölmennum fundi í ráðuneytinu í gær þar sem fulltrúar skóla, fræðsluaðila, sveitarfélaga og atvinnulífs komu saman.

Mikil eftirspurn eftir starfs- og tæknimenntuðu fólki hér á landi hefur valdið færnimisræmi á vinnumarkaði. Fyrir vikið er framleiðni á Íslandi undir meðaltali Norðurlandanna, að mati Efnahags- og framfarastofnunarinnar (e. OECD). Í nýlegri skýrslu bendir stofnunin á mikilvægi þess fyrir land og þjóð, að fleiri sæki sér starfs- og tæknimenntun enda verði þannig betur komið til móts við þarfir samfélagsins.

Með samkomulaginu sem ráðherra, Samtök iðnaðarins og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrituðu er farið í samstilltar aðgerðir, en þær eru helstar:
• aukin áhersla á að allir grunnskólanemar fái kennslu í verk-, tækni- og listgreinum samkvæmt aðalnámskrá, en misbrestur hefur verið á því í sumum skólum,
• breyta lögum um háskóla, svo iðnmenntaðir njóti sömu réttinda og þeir sem lokið hafa stúdentsprófi, til að sækja um háskólanám,
• einfalda skipulag starfs- og tæknináms, svo að námið verði í auknum mæli á ábyrgð skóla frá innritun til útskriftar,
• bæta aðgengi að starfs- og tækninámi á landsbyggðinni, enda ræður námsframboð í heimabyggð miklu um námsval ungmenna að loknum grunnskóla,
• styrkja náms- og starfsráðgjöf í grunnskólum, bæði til ungmenna og foreldra, svo ákvörðun um námsval byggi á ítarlegum og góðum upplýsingum um nám, tækifæri og starfsmöguleika.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra:
„Dagurinn markar tímamót og það er táknrænt að ráðuneytið hafi verið fullt út úr dyrum á þessum fundi. Áhuginn á málaflokknum er gríðarlegur og með samstarfi allra þessara aðila eru miklir kraftar að losna úr læðingi. Þetta eru brýnar og metnaðarfullar aðgerðir og ég er þess fullviss að okkur mun takast ætlunarverkið.“

Aldís Hafsteinsdóttir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga:
„Ég fagna mjög þessu samstarfi og er sannfærð um að framtakið verði þjóðinni allri til gæfu. Það er afar mikilvægt að menntakerfið, námsframboð á hverjum tíma og viðhorf til ólíkra greina séu í takt við þarfir samfélagsins og okkur takist að kveikja áhuga barnanna okkar á sem fjölbreyttustu námi og starfi. Við hjá Samtökum íslenskra sveitarfélaga hlökkum til að leggja okkar af mörkum.“

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Samtaka iðnaðarins:
„Íslenskur iðnaður er uppspretta gífurlegra verðmæta í hagkerfinu, sem aðeins verða til þar sem færni og þekking er til staðar. Samstarf eins og þetta er því ómetanlegt, þar sem margir taka höndum saman til að fjölga starfs- og tæknimenntuðu fólki á vinnumarkaði. Menntakerfið á að styðja við hugvit og nýsköpun, bæði með því að hvetja ungmenni til náms og bjóða þeim starfsmenntunarúrræði sem eru fyrir starfandi í atvinnulífinu.“
  • Nýir tímar í starfs- og tækninámi  - mynd úr myndasafni númer 1
  • Nýir tímar í starfs- og tækninámi  - mynd úr myndasafni númer 2
  • Nýir tímar í starfs- og tækninámi  - mynd úr myndasafni númer 3
  • Nýir tímar í starfs- og tækninámi  - mynd úr myndasafni númer 4

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta