Hoppa yfir valmynd
2. mars 2020 Dómsmálaráðuneytið

Verkefni færð til Vestmannaeyja

Kristín Þórðardóttir settur sýslumaður í Vestmannaeyjum, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra og Sigríður K. Þorgrímisdóttir frá Byggðastofnun. - mynd

Dómsmálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra undirrituðu í dag samkomulag um að færa verkefni við rafræna útgáfu á reglugerðarsafni frá höfðuðborgarsvæðinu til embættis Sýslumannsins í Vestmannaeyjum. Verkefnið miðar að því að tryggja að rafræn útgáfa af reglugerðarsafni, sem birtar eru í B deild Stjórnartíðinda, verði uppfært jafnóðum á vefsvæðinu reglugerd.is.

Um er að ræða átaksverkefni til fimm ára til að byrja með en unnið er að heildstæðri greiningu á nýjum verkefnum fyrir sýslumannsembættin. Í þessu verkefni er miðað við að eitt stöðugildi sérfræðings sinni verkefninu og það fjármagnað að hluta með stuðningi úr byggðaáætlun við fjarvinnslustöðvar. Stefnt er að því að verkefnið hefjist á fyrri hluta þessa árs.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta