Hoppa yfir valmynd
21. mars 2020 Atvinnuvegaráðuneytið

4,6 milljarðar til ferðaþjónustunnar auk almennra aðgerða

Ávísanir til landsmanna vegna ferðalaga innanlands, kröftugt alþjóðlegt markaðsátak og afnám gistináttaskatts út næsta ár eru meðal þeirra aðgerða í þágu íslenskrar ferðaþjónustu vegna COVID-19 sem ríkisstjórnin kynnti í dag. 

Kapp er lagt á að Ísland verði með fyrstu löndum til að byggja aftur upp eftirspurn í ferðaþjónustu. Í því skyni er þegar hafinn undirbúningur að kröftugu alþjóðlegu markaðsátaki í samvinnu við Íslandsstofu.

Stjórnvöld, ferðaþjónustan og almenningur þurfa einnig að taka höndum saman um að auka ferðalög innanlands. Í þeim tilgangi hefur ríkisstjórnin ákveðið að gefa landsmönnum 1,5 milljarða króna til að verja til ferðalaga innanlands. Átakið verður útfært nánar í samráði við Samtök ferðaþjónustunnar. 

Þá verður gistináttaskatturinn afnuminn út næsta ár, til ársloka 2021.

Þessar þrjár aðgerðir fela í sér alls 4,6 milljarða innspýtingu til ferðaþjónustunnar.

Auk þess hefur ferðamálaráðherra þegar breytt reglugerð um tryggingafé fyrir ferðaþjónustuaðila, sem liðkar verulega fyrir greininni.

Þá hefur Isavia fellt niður notendagjöld á Keflavíkurflugvelli í viðleitni til að örva flugframboð.

Síðast en ekki síst munu almennar aðgerðir í þágu atvinnulífsins ekki síst nýtast ferðaþjónustunni. Þar er m.a. um að ræða: greiðslur frá ríkinu til að mæta tekjutapi starfsfólks sem lækkar í starfshlutfalli; ríkisábyrgð á hluta útlána til fyrirtækja í rekstrarvanda; greiðslur til starfsmanna í sóttkví; og frestun á greiðslu opinberra gjalda fram á næsta ár.

„Með þessum stórfelldu aðgerðum veitum við aukið súrefni til atvinnulífsins og mildum áhrifin á fólk og fyrirtæki í ferðaþjónustu. Samtímis búum við okkur undir viðsnúninginn og verðum tilbúin að sækja kröftuglega fram á erlendum mörkuðum þegar aðstæður leyfa,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta