Sendiskrifstofur og borgaraþjónusta standa vaktina víða um heim
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins veitir Íslendingum vernd og aðstoð í neyðartilfellum erlendis og er ein af grunnstoðum utanríkisþjónustunnar. Starfsfólk sinnir verkefnum í húsnæði utanríkisráðuneytisins í Reykjavík og sendiskrifstofum Íslands í þremur heimsálfum.
Frá 14. til 25. mars sinnti starfsfólk utanríkisþjónustunnar hátt í þrjú þúsund og fimm hundruð erindum í síma, með tölvupósti og skilaboðum á Facebook. Þá voru reglulega sendir upplýsingapóstar til þeirra ellefu þúsund einstaklinga erlendis sem skráðir voru í gagnagrunn borgaraþjónustunnar sem stofnaður var 25. febrúar vegna Covid-19.
Af þeim er áætlað að um sjö þúsund manns hafi þegar snúið til baka til Íslands en um fjögur þúsund Íslendingar dvelji enn erlendis. Af þeim er áætlað að átta hundruð og níutíu manns stefni á heimkomu á næstu tveimur mánuðum. Rúmlega tvö þúsund og fimm hundruð manns hafa ekki skráð sérstakan heimferðardag og því má áætla að margir hyggist dvelja áfram erlendis.
Hægt er að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins með skilaboðum á Facebook, með tölvupósti á [email protected] eða í neyðarsíma borgaraþjónustu +354 545-0-112 sem er opinn allan sólahringinn. Svör við algengum spurningum og upplýsingar um þekktar ferðatakmarkanir vegna COVID-19 má finna á utn.is/ferdarad