Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2020 Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Matvælaráðuneytið

Staða Icelandair

Frá Keflavíkurflugvelli. - myndÞórmundur Jónatansson

Undanfarnar vikur hefur fulltrúum stjórnvalda verið haldið upplýstum um stöðu Icelandair þar sem fram hefur komið að félagið vinnur að fjárhagslegri endurskipulagningu og söfnun nýs hlutafjár.

Á ríkisstjórnarfundi í dag var samþykkt tillaga fjögurra ráðherra um að ríkið væri tilbúið að eiga samtal um mögulega veitingu lánalínu eða ábyrgð á lánum til félagsins. Er aðkoma stjórnvalda háð því að fullnægjandi árangur náist í fjárhagslegri endurskipulagningu félagins í samræmi við þær áætlanir sem kynntar hafa verið, þ.m.t. að afla nýs hlutafjár, en fram er komið að félagið vinnur nú að framkvæmd hlutafjárútboðs fyrir lok næsta mánaðar. Samhliða þessari vinnu halda viðræður áfram um nánari forsendur fyrir mögulegri fyrirgreiðslu og skilmálum fyrir henni af hálfu stjórnvalda. Gangi áform félagsins eftir verður þingmál um fyrirgreiðslu ríkisins lagt fyrir Alþingi til samþykktar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta