Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2020 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisvarpið - 3. þáttur. Utanríkisþjónusta í stöðugri mótun - Rætt við Sigríði Snævarr sendiherra

Sigríður Snævarr afhenti Francis l páfa trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands hjá Páfastóli þann 13. desember 2018. - mynd

Sigríður Snævarr á að baki langan og farsælan feril í utanríkisþjónustunni. Hún hóf störf í ráðuneytinu um miðbik áttunda áratugarins og í byrjun þess tíunda var hún skipuð sendiherra, fyrst íslenskra kvenna.

Í dag veitir Sigríður deild heimasendiherra forstöðu en henni var komið á fót í samræmi við tillögur umbótaskýrslunnar Utanríkisþjónusta til framtíðar sem Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra lét gera árið 2017.

Sigríður Snævarr er gestur þessa þriðja þáttar Utanríkisvarpsins þar sem þau Sveinn H. Guðmarsson rifja upp gamla tíma og spá í ókomna tíð. Upphafsstef: Daði Birgisson.

Utanríkisvarpið · 3. þáttur. Utanríkisþjónusta í stöðugri mótun - Rætt við Sigríði Snævarr sendiherra

Einnig má nálgast þættina á helstu hlaðvarpsveitum, t.d. Soundcloud og Spotify.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta