Hoppa yfir valmynd
27. maí 2020 Utanríkisráðuneytið

Samstarf við Háskólann á Akureyri um eflingu norðurslóðastarfs

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, heimsótti Akureyri í dag og skrifaði ásamt Eyjólfi Guðmundssyni, rektor Háskólans á Akureyri, undir þjónustusamning milli Háskólans og utanríkisráðuneytisins.

,,Norðurslóðir eru í örri þróun og ljóst að með sjálfbærni að leiðarljósi þarf Ísland að tryggja sína hagsmuni á svæðinu. Það er því mikilvægt að þekking á þeim málum byggist upp hér á landi,” sagði Guðlaugur Þór. Hann minnti einnig á þá sérstöðu Akureyrarbæjar að vera eina sveitarfélag landsins sem nær að og upp fyrir heimskautsbaug og kvað það ánægjulegt að tryggður hafi verið viðbótarstuðningur til að styðja við þá þekkingarmiðstöð norðurslóðamála sem byggst hefur upp á Akureyri.

Samningurinn felur Háskólanum meðal annars að vinna að því að styrkja þekkingargrunn íslensks háskólasamfélags um málefni norðurslóða og efla ungmenni á norðurslóðum. Markmið samningsins er enn fremur að styðja við leiðtogahlutverk Íslands hvað varðar vinnu sérfræðihóps Norðurskautsráðsins um heilsufar á norðurslóðum og ekki síst að auka skilning á störfum ráðsins almennt. Ísland fer með formennsku í Norðurskautsráðinu um þessar mundir og gildir samningurinn á formennskutímanum.

Samhliða formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu hefur að frumkvæði utanríkisráðherra verið skipuð þingmannanefnd allra flokka um endurskoðun norðurslóðastefnu Íslands sem samþykkt var samhljóða í mars 2011. Auk þess hefur utanríkisráðherra skipað starfshóp um efnahagsþróun á Norðurslóðum. Fulltrúar beggja hópa áttu í dag fundi með fulltrúum norðurslóðasamfélagsins og atvinnulífsins á Akureyri. Gert er ráð fyrir að báðir hópar skili niðurstöðu fyrir vorið 2021.
 
  • Samstarf við Háskólann á Akureyri um eflingu norðurslóðastarfs - mynd úr myndasafni númer 1
  • Samstarf við Háskólann á Akureyri um eflingu norðurslóðastarfs - mynd úr myndasafni númer 2
  • Samstarf við Háskólann á Akureyri um eflingu norðurslóðastarfs - mynd úr myndasafni númer 3
  • Guðlaugur Þór Þórðarson og Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri við undirritunina. - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta