Hoppa yfir valmynd
29. maí 2020 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 1/2020

Frá Stykkishólmi - myndGolli

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring - kr. 29.400
  2. Gisting í einn sólarhring - kr. 17.000
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag - kr. 12.400
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag - kr. 6.200

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2020. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2019 dags. 30. september 2019.

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta