Hoppa yfir valmynd
12. júní 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Skipulag heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda

Skipulag heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda - myndPhoto byMichał Parzuchowski on Unsplash

Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem móta á tillögur að heildarskipulagi heilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda. Hópurinn á einnig að leggja til aðgerðir sem miða að því að byggja upp þekkingu á málaflokknum meðal heilbrigðisstarfsfólks á öllum þjónustustigum.

Eins og segir í skipunarbréfi hópsins er vandi þeirra barna og ungmenna sem um ræðir oftast flókinn og því þörf á fjölbreyttum úrræðum svo þau nái bata. Algengt er að þau glími einnig við annan geðheilbrigðisvanda og félagslega erfiðleika. Því sé mikilvægt að horfa á heildarmyndina þegar leitað er lausna. Bent er á að hingað til hafi úrræði fyrir þennan hóp ekki verið nógu samhæfð, erfitt hafi verið að nálgast viðeigandi heilbrigðisþjónustu á réttu þjónustustigi og einnig að fá samfellda og samhæfða þjónustu.

Fyrir skömmu var opnuð afeitrunardeild á Landspítala fyrir börn og ungmenni með neyslu- og fíknivanda. Verkferlar eru fyrir hendi varðandi bráðamóttöku þessa hóps en ýmsa aðra þætti heilbrigðisþjónustunnar þarf að bæta.

Tillögur starfshópsins eiga að:

  • Byggjast á klínískum leiðbeiningum og bestu þekkingu í málaflokknum.
  • Ná yfir öll þrjú heilbrigðisþjónustustig í landinu,  þ.m.t. göngudeildarþjónustu og þjónustu í heilsugæslu.
  • Taka mið af áætlaðri þjónustuþörf markhópsins á hverju þjónustustigi.
  • Miða að því að hægt verði að tryggja sem besta samfellu í þjónustu á landinu öllu við önnur þjónustukerfi, svo sem félags- og skólaþjónustu.

Starfshópurinn skal við vinnu sína hafa samráð við þjónustuþega, þjónustuveitendur á mismunandi landsvæðum og aðra þá aðila sem talist geta verið hagsmunaaðilar í málinu, svo sem Barnaverndarstofu, barnaverndarnefndir og SÁÁ.

Starfshópinn skipa Helga Sif Friðjónsdóttir, tilnefnd af Landspítala og er hún formaður, Sigurður Örn Hektorsson, tilnefndur af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Margrét Ólafía Tómasdóttir, tilnefnd af Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.

Starfshópnum er ætlað að skila niðurstöðu sinni til heilbrigðisráðherra eigi síðar en 30. október 2020.

Heilbrigðisráðherra hefur einnig skipað starfshóp til að rýna löggjöf sem snýr að þessum börnum og gera tillögur um hvernig megi laga hana betur að nútímahugmyndafræði um þjónustu við börn og ungmenni.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta