Fimmtán sóttu um embætti héraðsdómara
Þann 29. maí sl. auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar embætti dómara sem mun hafa fasta starfsstöð við Héraðsdóm Reykjaness og rann umsóknarfrestur út þann 15. júní 2020. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. ágúst 2020.
Umsækjendur um embættið eru:
- Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur/aðstoðarsaksóknari
- Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður
- Guðfinnur Stefánsson, aðstoðarmaður héraðsdómara
- Guðmundína Ragnarsdóttir, lögmaður
- Halldóra Þorsteinsdóttir, lektor
- Herdís Hallmarsdóttir, lögmaður
- Höskuldur Þórhallsson, lögmaður
- Ingi Tryggvason, lögmaður
- Ingólfur Vignir Guðmundsson, lögmaður
- Ólafur Egill Jónsson, aðstoðarmaður héraðsdómara
- Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, lektor
- Sigurður Jónsson, lögmaður
- Sólveig Ingadóttir, aðstoðarmaður héraðsdómara
- Súsanna Björg Fróðadóttir, aðstoðarsaksóknari
- Þórhallur Haukur Þorvaldsson, lögmaður