Hoppa yfir valmynd
19. júní 2020 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra undirritar samning við FKA

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Hulda Ragnheiður Árnadóttir, formaður FKA - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Hulda Ragnheiður Árnadóttir, formaður FKA (Félag kvenna í atvinnulífinu), endurnýjuðu samstarfssamning um þróun og kynningu Jafnvægisvogarinnar í Stjórnarráðinu í dag.

Jafnvægisvogin er mælitæki sem hefur eftirlit með stöðu og þróun kynjajafnréttis í stjórnum og framkvæmdastjórnum íslenskra fyrirtækja. Með samningnum veitir forsætisráðuneytið FKA stuðning til að stuðla að auknu kynjajafnrétti í íslensku atvinnulífi.

Samkvæmt samningnum skal FKA m.a. uppfæra Jafnvægisvogina reglulega, annast fræðslu um mikilvægi fjölbreytileika í stjórnum og stjórnendateymum og lyfta sérstaklega þeim fyrirtækjum sem náð hafa markmiðum verkefnisins með úthlutun viðurkenninga.

Samningurinn er til eins árs og gildir frá 19. júní 2020 til 19. júní 2021. Forsætisráðuneytið greiðir FKA fimm milljónir króna til að sinna þeim verkþáttum sem samningurinn tekur til.

  • Forsætisráðherra undirritar samning við FKA - mynd úr myndasafni númer 1

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
5. Jafnrétti kynjanna
9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta