Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. júlí 2020 til 30. júní 2021
Þriðjudaginn 23. júní 2020 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum fyrir tímabilið 1. júlí 2020 til 30. júní 2021.
Samtals bárust þrettán umsóknir frá aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á nauta-, svína- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum og ostum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.
Samtals bárust þrettán gild tilboð í tollkvótann.
Sex tilboð bárust um innflutning á nautgripakjöti, samtals 216.000 kg á meðalverðinu 117 kr./kg. Hæsta boð var 350 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 95.000 kg. á jafnvægisverðinu 100 kr./kg.
Tvær umsóknir bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 20.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 64.000 kg.
Tvær umsóknir bárst um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 60.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 345.000 kg.
Sex tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 173.000 kg á meðalverðinu 6 kr./kg. Hæsta boð var 100 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 59.000 kg á jafnvægisverðinu 10 kr./kg.
Þrjár umsóknir bárust um innflutning smjöri, samtals 22.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 53.000 kg.
Átta tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 169.500 kg á meðalverðinu 350 kr./kg. Hæsta boð var 650 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 119.000 kg á jafnvægisverðinu 181 kr./kg.
Fjórar umsóknir bárust í tollkvóta vegna innflutnings á eggjum og afurðum þeirra, samtals 60.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 76.000 kg.
Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum, samtals 151.000 kg. á meðalverðinu 215 kr./kg. Hæsta boð var 600 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 86.000 kg á jafnvægisverðinu 5 kr./kg.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:
Nautgripakjöt fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
40.000 |
Ekran ehf |
4.000 |
Garri ehf |
25.000 |
Innnes ehf |
15.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
11.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Svínakjöt fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
10.000 |
Ekran ehf. |
10.000 |
Nautica ehf |
Kinda- og geitakjöt fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
50.000 |
Ekran ehf |
10.000 |
Kríonan ehf |
Alifuglakjöt fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
46.217 |
Aðföng |
10.000 |
Krónan ehf |
2.783 |
Nautica ehf |
Smjör fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
10.000 |
Ekran ehf. |
2.000 |
Danól ehf |
10.000 |
Krónan ehf |
Ostur fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
20.000 |
Aðföng |
55.000 |
Innnes ehf |
17.000 |
Krónan ehf |
10.000 |
Mjólkursamsalan ehf |
15.000 |
Nathan & Olsen ehf |
2.000 |
Nautica ehf |
Fuglsegg fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
20.000 |
Ekran ehf |
15.000 |
Innnes ehf |
5.000 |
Krónan ehf |
20.000 |
Samkaup hf |
Unnar kjötvörur fyrir tímabilið júlí 2020 - júní 2021
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
22.000 |
Aðföng |
4.133 |
Danól ehf |
1.333 |
Ekran ehf |
25.000 |
Innnes ehf |
267 |
KFC ehf |
15.000 |
Krónan ehf |
3.000 |
Nautica ehf |
267 |
Pizza hut ehf |
15.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Reykjavík, 26. júní 2020
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu