Hoppa yfir valmynd
3. júlí 2020 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Unnið að úrbótum á 64 fjarskiptastöðvum með auknu varaafli eftir óveður í vetur

Kortið sýnir hvar úrbætur verða gerðar á fjarskiptastöðvum með því að auka varaafl og fjölga færanlegum vararafstöðvum. - myndNeyðarlínan

Neyðarlínan vinnur nú að því að gera úrbætur á 64 fjarskiptastöðvum víða um land með auknu varaafli og að fjölga færanlegum vararafstöðvum. Þar af eru 36 fastar vararafstöðvar en annars staðar eru rafgeymar eða tenglar fyrir færanlegar rafstöðvar. Tilgangurinn er að tryggja rekstraröryggi í fjarskiptum eftir mikil óveður sem gengu yfir landið í vetur. 

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti nýverið að verkefnið fengi 125,5 milljóna kr. fjárveitingu á þessu ári á vegum fjarskiptasjóðs í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Fjárveitingarnar eru veittar á grundvelli fjárfestingaátaks stjórnvalda til að sporna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. 

„Óveðrið sem gekk yfir landið í vetur afhjúpaði marga veikleika í grundvallarkerfum okkar, rafmagnskerfinu og fjarskiptakerfinu. Sú vinna sem er hafin er hjá Neyðarlínunni með stuðningi fjarskiptasjóðs er mikilvægt skref í að tryggja örugg samskipti um allt land,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Samstarf við Mílu, fjarskiptafélögin og RÚV

Neyðarlínan og fjarskiptasjóður hafa átt í nánu samstarfi við Mílu, fjarskiptafélögin Nova, Símann og Sýn (Vodafone) og Ríkisútvarpið um úrbæturnar. Í lok síðasta árs var sett af stað vinna að frumkvæði Neyðarlínunnar að fara ofan í saumana á því hvað þyrfti að gera til að bæta rekstraröryggi fjarskiptastöðva og tryggja að almenningur geti kallað eftir aðstoð í neyðarnúmerið 112 í vá eins og skapaðist í óveðrum síðasta vetur.

„Út úr þessari vinnu voru lagðar fram tillögur sem yfirvöld ákváðu að styðjast við,“ segir Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. „Sú vinna er komin á fullt og í fyrri áfanga verksins á þessu ári verður unnið að úrbótum á 64 stöðum víða um land. Stefnt er að því að hefja seinni áfanga verkefnisins á næsta ári sem mun ná til þess hluta landsins sem eftir verður að loknu fyrri áfanga,“ segir Þórhallur.

Í fyrsta áfanga verður unnið að verkefnum á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi. formað er að 100 milljónir bætist við þetta verkefni á næsta ári. Þá verður hugað að varaaflstöðvum á Suðurlandi og suðvesturhorni landsins.

  • Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, við undirritun samnings um fjárveitingu til uppbyggingar á varaaflstöðvum um land allt. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta