Stuðningur við einkarekna fjölmiðla vegna áhrifa COVID-19
Á nýliðnu þingi var mennta- og menningarmálaráðherra falið, að útfæra með reglugerð fyrirkomulag við úthlutun 400 milljóna. kr. sérstaks rekstrarstuðnings við einkarekna fjölmiðla til að mæta efnahagslegum áhrifum COVID-19. Reglugerðin liggur nú fyrir, hún hefur verið kynnt ríkisstjórn og birt á vef Stjórnartíðinda.
Reglugerðin er sett með stoð í 9. gr. laga nr. 37/2020, um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónaveiru sem samþykkt voru á Alþingi þann 11. maí. Þar er tilgreint að við ákvörðun um fjárhæð stuðnings verði litið til launa, fjölda starfsmanna og verktakagreiðsla vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni á ritstjórnum árið 2019, ásamt útgáfutíðni miðilsins og fjölbreytileika. Stuðningurinn verður að hámarki 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjenda en stuðningur til hvers umsækjenda getur ekki orðið hærri en sem nemur 25% af þeirri fjárveitingu sem Alþingi hefur úthlutað til sérstaks rekstrarstuðnings.
Undir stuðningshæfan rekstrarkostnað fellur beinn launakostnaður umsækjanda til blaða- og fréttamanna, ritstjóra og aðstoðarritstjóra, myndatökumanna og ljósmyndara á árinu 2019 vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni og beinar verktakagreiðslur til sambærilegra aðila. Fari svo að heildarfjárhæð samþykktra umsókna um stuðningshæfan rekstrarkostnað verði umfram fjárveitingar Alþingis skerðist stuðningurinn til allra umsækjenda í jöfnum hlutföllum.
Meðal skilyrða fyrir sérstökum rekstrarstuðningi eru:
- Fjölmiðill skal vera skráður eða hafa leyfi til hljóð- eða myndmiðlunar
- Efni sem birtist í fjölmiðli skal vera fjölbreytt og ætlað fyrir almenning á Íslandi. Staðbundnir fjölmiðar eru undanþegnir þessu skilyrði.
- Fjölmiðill skal hafa starfað með leyfi frá fjölmiðlanefnd, hafa staðið skil á árlegri skýrslugjöf til hennar og veitt nefndinni fullnægjandi gögn og upplýsingar um eignarhald sitt, þar með talin gögn um raunverulega eigendur.
- Fjölmiðill skal ekki vera í vanskilum með opinber gjöld, skatta og skattsektir.
Umsjón með umsóknarferli og mat á umsóknum verður á höndum fjölmiðlanefndar og mun hún skila tillögum um úthlutun stuðningsins til ráðherra. Nánari upplýsingar verður að finna á vef fjölmiðlanefndar á næstu dögum.
Umsóknir skulu afgreiddar fyrir 1. september 2020