Endurskoðun á lögum um villt dýr í samráðsgátt
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur kynnt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Um er að ræða heildarendurskoðun laga þessa efnis.
Lögin voru endurskoðuð í samræmi við ákvæði í sáttmála ríkisstjórnarflokkanna. Við vinnslu frumvarpsdraganna var m.a. horft til tillagna í skýrslu nefndar um lagalega og stjórnsýslulega stöðu villtra fugla og spendýra, auk þess sem haft var samráð við ýmsar stofnanir og áhuga- og hagsmunasamtök.
Í frumvarpsdrögunum eru lagðar til fjölmargar breytingar á gildandi löggjöf. Þar eru ákvæði m.a. um eftirfarandi:
- Sérstakar stjórnunar og verndaráætlanir verði gerðar fyrir alla helstu stofna og tegundir villtra dýra og þær liggi til grundvallar ákvarðanatöku í málaflokknum.
- Gerð stjórnunar- og verndaráætlana verði samvinnuverkefni Náttúrufræðistofnunar Íslands og Umhverfisstofnunar.
- Válistar verði lögfestir.
- Allar veiðar á villtum dýrum, þ.m.t. hlunnindaveiðar, skuli vera sjálfbærar.
- Lagðar eru til breytingar á heimilum veiðiaðferðum.
- Settar verði inn undanþágur varðandi skotveiðar úr farartækjum fyrir veiðimenn sem bundnir eru í hjólastól.
- Tekið verði með markvissum hætti á tjóni sem villt dýr og fuglar valdi.
- Veiðikortakerfið verði einfaldað og nái einnig yfir minkaveiðar, eggjatöku og hlunnindaveiðar.
- Mælt fyrir um virka veiðistjórnun og veiðieftirlit á landinu öllu.
- Fleiri möguleikar verði fyrir hendi til að veita villtum dýrum og búsvæðum þeirra alhliða og sértæka vernd.
- Aukin áhersla er lögð á dýravernd og dýravelferð.
Fyllri lýsing á fyrirhuguðum breytingum frá núgildandi lögum er að finna á samráðsgátt stjórnvalda og í frumvarpsdrögunum sem þar eru að finna.
Umsögnum um frumvarpið skal skilað í samráðsgátt og er frestur til þess til 10. ágúst næstkomandi.