Styrkjum úthlutað til orkuskipta í gistiskálum
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur úthlutað styrkjum til orkuskipta í gistiskálum, samtals að upphæð 35,2 milljónum króna. Styrkirnir eru fjármagnaðir af sérstöku tímabundnu fjárfestingarátaki stjórnvalda vegna Covid-19 farsóttarinnar.
Styrkjunum er ætlað að stuðla að orkuskiptum og draga þar með úr notkun jarðefnaeldsneytis við almennan rekstur í skálum. Upphæð styrkjanna er allt að 50% af áætluðum heildarkostnaði við hvert verkefni.
Eftirtaldir aðilar fengu úthlutað styrkjum vegna orkuskipta í skálum:
- Ferðafélag Fljótsdalshéraðs vegna orkuskipta í skála félagsins í Breiðuvík í Borgarfirði Eystra – 2,5 milljónir króna.
- Ferðafélag Íslands, vegna orkuskipta í húsum félagsins í Þórsmörk auk uppsetningar hleðslustöðva fyrir rafbíla – 13,6 milljónir króna.
- Ferðafélagið Útivist, vegna orkuskipta í skála félagsins í Básum á Goðalandi auk uppsetningar hleðslustöðvar fyrir rafbíla – 19,1 milljónir króna.