Frásögnum safnað um skólastarf í samkomubanni
Í tengslum við ráðstefnuna um viðbrögð íslenska menntakerfisins vegna COVID-19 faraldursins sem fara mun fram í september nk. er nú safnað sögum og frásögnum af upplifun fólks og reynslu af námi og kennslu í samkomubanni. Sögurnar verða nýttar í umfjöllun ráðstefnunnar og valdar sögur verða efniviður í bók sem ráðgert er að gefa út í kjölfarið. Markmiðið er að draga lærdóm af því sem gert var og nýta þá reynslu til framtíðar, íslensku menntakerfi til heilla.
„Við höfum áhuga á öllu því sem við kemur námi og kennslu á þessum tíma, en einnig öðrum þáttum sem höfðu áhrif á nemendur, foreldra, kennara, skólastjórnendur auk annarra starfsmanna skóla á öllum skólastigum. Við viljum fá sem breiðasta dreifingu sagna með alls konar upplifunum, áskorunum, lausnum og reynslu. Umfram allt höfum við áhuga á sögum sem við getum dregið lærdóm af,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Sögunum má skila á íslensku eða ensku á netfangið [email protected] fyrir 17. ágúst nk. Þær má senda inn skriflega eða á fjölbreyttara formi, s.s. sem myndbönd, hljóðrás eða ljósmyndir.
Sögurnar mega vera nafnlausar, en koma þarf fram staða þess sem miðlar sögunni (nemandi, foreldri, kennari, skólastjórnandi, annað), skólastig og landsfjórðungur/svæði. Æskileg lengd sagna er allt að 300-600 orð í rituðum texta eða allt að 3 mínútur ef um myndband eða hljóðrás er að ræða. Efnistök eru opin en málefnið þarf að tengjast menntun og COVID-19.
Til að skýra betur hverskonar sögum er leitað eftir er hér til hliðsjónar stuttur listi yfir áherslur. Þátttakendum er þó velkomið að fjalla um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta tengt COVID-19 og menntun.
- Áskoranir
- Nám og kennsla
- Fjölskyldulífið - foreldrasamstarf
- Líðan
- Félagstengsl – vinir
- Frístundir
- Áhrif til framtíðar - lærdómur