Hoppa yfir valmynd
12. ágúst 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Evrópusamstarf um málefni fólks með heilabilun formgert

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að staðfesta samstarfsyfirlýsingu sem kveður á um formlega aðild heilbrigðisráðuneytisins að faglegum samstarfsvettvangi evrópsk sérfræðingahóps um málefni einstaklinga með heilabilun (The European Group og Governmental Experts on Dementia). Ráðuneytið hefur tekið þátt í samstarfinu undanfarið eitt og hálft ár og hefur það nýst vel, meðal annars við stefnumótun og gerð aðgerðaáætlunar um þjónustu við einstaklinga með heilabilun sem birt var í apríl síðastliðnum. Með undirritun yfirlýsingarinnar er samstarfið formgert en þar er skilgreint hvað í því felst, fjallað um einstaka efnisþætti og verkþætti, stjórnun og fjármögnun samstarfsins.

Fjöldi Evrópuþjóða tekur þátt í samstarfinu þar sem koma saman sérfræðingar ráðuneyta sem fara með málefni einstaklinga með heilabilun en skipulag og umgjörð samráðsfunda er á hendi evrópsku Alzheimersamtakanna (Alzheimer Europe).

Þess má geta að heilbrigðisráðuneytið á einnig í norrænu samstarfi um málefni fólks með heilabilun þar sem unnið er að ýmsum verkefnum og faglegum sjónarmiðum og þekkingu deilt. Í tengslum við það samstarf er t.d. nýbúið að gefa út handbók um umönnun innflytjenda með heilabilun og hefur hún verið þýdd á íslensku.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta