COVID-19: Vinnuhópur um gagnkvæma viðurkenningu vottorða
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað vinnuhóp til að skoða m.a. hvort stjórnvöld geti viðurkennt erlend vottorð um að einstaklingar hafi sýkst af SARS-CoV-2 veirunni og þar með undanskilið viðkomandi frá kröfum um skimun á landamærum. Liður í þessari vinnu er að kanna hvort taka megi gild vottorð um nýleg neikvæð PCR-próf og jafnvel vottorð sem sýna fram á að einstaklingur hafi myndað mótefni fyrir SARS-CoV-2.
Eins og fram kemur í skipunarbréfi er talið brýnt að ráðast í þessa skoðun og að jafnframt þurfi að hefja skipulagða vinnu til að kanna gagnkvæma viðurkenningu vottorða milli landa. Í framhaldinu myndi vinnuhópurinn hafa það hlutverk að leggja til við stjórnvöld gagnkvæma viðurkenningu vottorða við tiltekin ríki eftir almennum reglum. Samhliða þessari vinnu þarf að yfirfara og gera nauðsynlegar breytingar á reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19.
Vinnuhópinn skipa
- Rögnvaldur G. Gunnarsson, fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, formaður
- Guðrún Aspelund, fulltrúi sóttvarnalæknis
- Jón Pétur Jónsson, fulltrúi ríkislögreglustjóra
- María Mjöll Jónsdóttir, fulltrúi utanríkisráðuneytisins
- Kjartan Ólafsson, fulltrúi dómsmálaráðuneytisins
- Guðrún G. Gunnlaugsdóttir, fulltrúi Þjóðskrár Íslands