40 milljónir til neyðaraðstoðar á Lesbos og í Líbanon
Ófremdarástand ríkir á Lesbos eftir að eldur olli mikilli eyðileggingu á Moria-móttökusvæðinu fyrir skemmstu. Vistarverur hátt í tólf þúsund hælisleitenda, þar af fjögur þúsund barna, brunnu til kaldra kola og margir eiga því ekki í nein hús að venda. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur því ákveðið að tuttugu milljónum króna verði veitt til neyðaraðstoðar til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR).
„Ástandið á Lesbos er grafalvarlegt þar sem þúsundir sem fyrir bjuggu við harðan kost hafa nú misst allt sitt. Það er mat mannúðarstofnana á vettvangi að bregðast verði við þeirri neyð sem þarna ríkir og því höfum við ákveðið að veita þessum fjármunum til að aðstoða bágstadda án tafar,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
Þá verður tuttugu milljónum króna varið til Lebanon Humanitarian Fund, svæðasjóðs samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) í Líbanon vegna áframhaldandi neyðarástands í Beirút í kjölfar sprenginganna þar 4. ágúst sl. Þessir fjármunir koma til viðbótar við tuttugu milljóna króna framlag til matvælaaðstoðar í Líbanon sem íslensk stjórnvöld ákváðu skömmu eftir sprengingarnar.
„Ríki heims brugðust hratt við hörmungunum í líbönsku höfuðborginni en betur má ef duga skal. Neyðin er enn mikil og bætist við þann vanda sem þjóðin átti við að etja, þar með talið efnahags- og stjórnarkreppu, auk mikils álags vegna flóttamanna frá grannríkjunum. Bregðast verður við, ekki síst til að sporna við enn meiri óstöðugleika í þessum viðkvæma heimshluta,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson.