Opinn streymisfundur: Kynning á samkeppnismati OECD um ferðaþjónustu og byggingariðnað á Íslandi
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra býður til opins streymisfundar um niðurstöður samkeppnismats OECD á íslenskri ferðaþjónustu og byggingariðnaði, þriðjudaginn 10. nóvember kl. 13:00.
Tilgangur samkeppnismats er að greina lög og reglur sem atvinnulífinu er gert að starfa eftir með tilliti til þess hvort í þeim felist samkeppnishindranir eða óþarfa reglubyrði sem ryðja megi úr vegi.
Dagskrá fundar:
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Angel Gurría, framkvæmdastjóra OECD
Ania Thiemann, verkefnastjóri samkeppnismatsins hjá OECD
Ásmundur Einar Daðason, félagsmála- og barnamálaráðherra
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Fundarstjóri er Bergur Ebbi
Hér má nálgast streymið: https://youtu.be/e8yQGjcm14s