Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóður auglýsir eftir umsóknum
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði.
Sjóðurinn starfar í samræmi við þingsályktun nr. 40/149 um aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna, og nýtur framlaga frá heilbrigðisráðuneytinu og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu samtals 30 milljónir kr. á ári í þrjú ár, þ.e. til ársloka 2022.
Tilgangur sjóðsins er að fjármagna verkefni undir formerkjum „Einnar heilsu“ (e. One Health) í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi.
- Auglýst er eftir umsóknum um styrki til grunnrannsókna í sýklalyfjaónæmi.
- Í styrkumsókn skal m.a. koma fram: Markmið verkefnis, fjárhæð sem sótt er um í sjóðinn, framkvæmda- og kostnaðaráætlun, áætlun um nýtingu fjármagns sem sótt er um, rannsóknarleyfi og hvernig nýta megi niðurstöður til að draga úr sýklalyfjaónæmi. Sótt skal um í nafni einstaklings, stofnunar eða starfseiningar.
- Úthlutanir sjóðsins eru tvisvar á ári. Umsóknarfrestur rennur út 10. desember 2020.
- Auglýst er eftir umsóknum um styrki til þess að fjármagna tilteknar skimanir fyrir ónæmum sýklum.
- Til nánari skýringa verða einungis fjármagnaðar skimanir sem eru umfram lögbundnar skimanir, t.d. tilteknar skimanir í matvælum, sauðfé, hrossum, gæludýrum, sníkjudýrum og umhverfi.
- Í styrkumsókn skal m.a. koma fram skimunar- og kostnaðaráætlun og rökstuðningur fyrir mikilvægi verkefnisins.
- Úthlutanir sjóðsins eru einu sinni á ári. Umsóknarfrestur rennur út 1. maí 2021.
- Auglýst er eftir umsóknum um styrki til þess að fjármagna umframkostnað vegna rannsókna í almannaþágu í því skyni að rekja uppruna sýkla sem dreifast á milli manna og dýra (súnur) í þeim tilvikum þegar upp koma hrinur, hópsýkingar eða faraldrar.
- Umsóknir geta borist sjóðnum allt árið um kring og verða umsóknir teknar til umfjöllunar á fundi sjóðsstjórnar í kjölfar þess að þær berast.
- Í styrkumsókn skal m.a. koma fram lýsing á atburðinum og rannsóknaáætlanir viðkomandi stofnana auk frumrits reikninga vegna rannsókna sem áritaðir eru af yfirdýralækni eða sóttvarnalækni.
- Úthlutanir sjóðsins eru eftir þörfum.
Hér má finna nánari upplýsingar um sjóðinn, starfsreglur og úthlutunarreglur.
Umsækjendur skulu sækja um styrk á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins á slóðinni https://minarsidur.stjr.is