Ráðstöfunartekjur örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega aukast
Alþingi hefur samþykkt frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, þar sem dregið er úr áhrifum tekjutryggingar örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega á útreikning sérstakrar uppbótar vegna framfærslu. Með nýju lögunum telst einungis 95% af fjárhæð tekjutryggingar til tekna lífeyrisþega í stað 100% nú.
Ráðstöfunartekjur þeirra örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem fá uppbótina greidda munu aukast umtalsvert og mun meðalfjárhæð uppbótarinnar hækka mest hjá tekjulægsta hópnum. Tekjulægstu örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegarnir munu þannig fá 7.980 króna hækkun á mánuði umfram þá 3,6% almennu hækkun á bótum almannatrygginga sem gert er ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2021. Heildarhækkun bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar til tekjulægstu lífeyrisþeganna verður því um 19.700 krónur á mánuði, eða sem nemur 6,1% hækkun um næstu áramót. Meðalhækkun til allra lífeyrisþega verður tæplega 7.000 krónur á mánuði.
24.000 örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar fá eingreiðslu
Örorku og endurhæfingarlífeyrisþegum sem hafa á yfirstandandi ári átt rétt á greiðslu örorkulífeyris, slysaörorkulífeyris eða endurhæfingarlífeyris fá greidda eingreiðslu í desember sem nemur 50.000 krónum. Alls fá 24.000 örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar eingreiðsluna.
Þeir sem hafa fengið greiðslur frá Tryggingastofnun alla mánuði ársins fá fulla greiðslu en fjárhæð eingreiðslunnar til þeirra sem hafa fengið greiðslur hluta úr ári verði í hlutfalli við fjölda þeirra mánaða ársins sem viðkomandi hefur átt rétt á greiðslum. Í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem nú ríkja vegna Covid-19 heimsfaraldursins verður eingreiðslan skattfrjáls og mun hún því ekki leiða til skerðingar á öðrum greiðslum.
Tryggingastofnun ríkisins hefur þegar innt greiðsluna af hendi.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra: „Með þessum aðgerðum erum við að bæta kjör tekjulægsta hóps örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega og tryggja að þeir sem engar aðrar tekjur hafa en bætur almannatrygginga fái umtalsverða kjarabót. Þannig eru tekjulægstu hóparnir að fá hækkun upp á tæpar 20.000 krónur á mánuði, og við lögðum einnig mikla áherslu á að eingreiðslan sem þessir hópar fá núna í desember verði skattfrjáls og muni ekki skerða aðrar greiðslur.“