Þrjú sóttu um lögreglustjóra á Vesturlandi
Þrír umsækjendur voru um embætti lögreglustjóra á Vesturlandi, en umsóknarfrestur var til og með 14. desember. Þau sem sóttu um eru:
- Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir – aðstoðarsaksóknari
- Birgir Jónasson - Löglærður fulltrúi í greiningardeild ríkislögreglustjóra og stundakennari við Háskólann á Akureyri
- Gunnar Örn Jónsson - Lögreglustjóri á Norðurlandi vestra
Hæfnisnefnd sem hefur ráðgefandi hlutverk í ráðningarferlinu mun nú fara yfir umsóknirnar.