Hoppa yfir valmynd
21. desember 2020 Innviðaráðuneytið

Skýrsla um framvindu byggðaáætlunar lögð fram á Alþingi

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur lagt fram skýrslu á Alþingi um framvindu stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018–2024, sem samþykkt var í júní 2018. Markmið byggðaáætlunar að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Sérstaka áherslu skal leggja á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.

Í viðauka sem fylgir skýrslunni er tafla með upplýsingum um allar 54 aðgerðir byggðaáætlunar. Þar koma meðal annars fram markmið hverrar aðgerðar og staða þeirra í nóvember/desember 2020. Einnig eru upplýsingar um fjármagn sem varið hefur verið til hverrar aðgerðar árin 2018-2020 sem og heildarupphæð sem áætluð er af byggðalið á tímabilinu 2018–2024. Í viðaukanum kemur fram að 40 aðgerðir séu í vinnslu og 14 aðgerðum sé lokið.

Í skýrslunni kemur fram að Byggðastofnun telur að merkja megi aukna áherslu á byggðamál hjá stjórnvöldum og fjölmörg þingmál tengjast beint og markvisst einstökum tillögum byggðaáætlunar. Þá er áætlunin heildstæðari og nær til mun fleiri sviða en fyrri áætlanir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta