Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi
Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smurostum frá Noregi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31. desember 2021.
|
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
Úr tollskrárnr.: |
|
|
kg |
% |
kr./kg |
0406.3000 |
Smurostur |
01.01.-31.12.21 |
13.000 |
0 |
0 |
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar.
Úthlutun er ekki framseljanleg.
Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 6. janúar 2021.