Frumvarp um málsmeðferð vindorku í verndar og orkunýtingaáætlun í samráðsgátt
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt frumvarp til breytingum á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun. Frumvarpið er unnið á grundvelli skýrslu ásamt skilabréfi starfshóps þriggja ráðuneyta sem vann að tillögum um nýja málsmeðferð vindorku innan verndar- og orkunýtingaráætlunar (Rammaáætlunar).
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að „setja þurfi lög um vindorkuver ásamt því að vinna með sveitarfélögum leiðbeiningar um skipulagsákvarðanir og leyfisveitingar“.
Sérstakur starfshópur, skipaður fulltrúum frá umhverfis- og auðlinda-, atvinnuvega- og nýsköpunar- og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, fékk það hlutverk að móta tillögur um hvernig best væri að haga málefnum vindorku sem orkunýtingarkosts hér á landi og hvort hún eigi að sæta annarri málsmeðferð innan rammaáætlunar en hinir hefðbundnu orkunýtingarkostir.
Í skýrslu starfshópsins er lagt til að lögin verði aðlöguð betur að séreðli vindorkunnar, sem hvorki er staðbundin eða takmörkuð að eðli eða umfangi, og landsvæðum skipt niður í þrjá flokka, með tilliti til hagnýtingar vindorku og byggingar vindorkuvera.
Flokkur 1 tekur til þeirra landsvæða þar sem ekki yrði leyft að reisa vindorkuver. Undir flokk 2 falla svæði sem gætu í eðli sínu verið viðkvæm fyrir uppbyggingu vindorkuvera, en þar sem virkjun vinds gæti þó komið til greina að uppfylltum tilteknum skilyrðum og að undangengnu mati verkefnisstjórnar rammaáætlunar. Flokkur 3 nær svo yfir þau landssvæði sem hvorki falla í flokk 1 né 2 og þar liggur ákvörðunarvaldið hjá viðkomandi sveitarfélagi og öðrum stjórnvöldum.
Í tillögunum er gert ráð fyrir að við mat á virkjunarkostum í vindorku innan rammaáætlunar verði horft til sérstakrar stefnumörkunar stjórnvalda sem sett verði fram í þingsályktun, þar sem gerð verði grein fyrir þeim svæðum sem falla í flokk 1. og 2.
Umsögnum um frumvarpsdrögin skal skilað í Samráðsgátt Stjórnarráðsins eigi síðar en 5. febrúar næstkomandi. Athygli er vakin á fylgigögnum í Samráðsgátt.