Lýsir yfir djúpstæðum vonbrigðum vegna dóms yfir Navalní
Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lýsir yfir miklum vonbrigðum vegna dóms yfir rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní og skorar á rússnesk stjórnvöld að láta hann lausan. Fulltrúar Íslands hjá Evrópuráðinu og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) hafa tekið undir gagnrýni á framgöngu rússneskra stjórnvalda gegn friðsömum mótmælendum.
Navalní var á dögunum handtekinn við komu til Rússlands en hann hafði dvalið í Þýskalandi eftir að hafa orðið fyrir eiturefnaárás í heimalandi sínu í fyrra. Dómstóll í Moskvu dæmdi hann svo í gær til óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir rof á skilorði vegna eldri dóms sem gagnrýndur hefur verið á alþjóðavettvangi.
Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra birti yfirlýsingu á Twitter í gær þar sem hann lýsti yfir miklum vonbrigðum með dóminn og skoraði á rússnesk stjórnvöld að láta Navalní lausan og aðra þá sem sætu ranglega í varðhaldi fyrir að mótmæla. Aldrei gæti liðist að þaggað væri niður í pólitískum mótherjum með því að loka þá á bak við lás og slá.
Í dag var staða mannréttinda í Rússlandi tekin til umræðu í Evrópuráðinu. Ragnhildur Arnljótsdóttir, fastafulltrúi gagnvart Evrópuráðinu, áréttaði þannig áhyggjur Íslands af handtöku Navalní og þeirra sem hefðu nýtt tjáningarfrelsi sitt síðustu vikur og hvatti rússnesk stjórnvöld til þess að sleppa þeim úr haldi, virða tjáningar- og fundafrelsi og þannig Mannréttindasáttmála Evrópu. Þá var Ísland aðili að yfirlýsingu á fastaráðsfundi ÖSE 28. janúar þar sem ofbeldi gagnvart friðsömu andófi í Rússlandi var fordæmt og skorað á rússnesk stjórnvöld að leysa Navalní úr haldi og aðra þá, sem handteknir hafa verið.Deeply disappointed over the verdict against Alexei Navalny @navalny. Silencing political opponents by putting them behind bars is never acceptable & is reminiscent of a grim past. Calling on #Russia to release him immediately as well as those wrongfully detained for protesting.
— Guðlaugur Þór (@GudlaugurThor) February 2, 2021
Í lok nýliðins mánaðar skoraði Guðlaugur Þór Þórðarson á rússnesk stjórnvöld að standa við mannréttindaskuldbindingar sínar og virða borgarleg og stjórnmálaleg réttindi fólks. Leysa ætti úr haldi bæði fjölmiðlafólk og alla þá sem tekið hafa þátt í friðsömum mótmælum.
We call on #Russia to uphold its #humanrights obligations and respect their people’s civil & political rights. Russia should immediately release all peaceful protesters & journalists.
— Guðlaugur Þór (@GudlaugurThor) January 31, 2021
Fyrr í sama mánuði lýsti ráðherra yfir vonbrigðum vegna handtöku Alexei Navalní við komuna til Moskvu og skoraði á rússnesk stjórnvöld að láta hann tafarlaust lausan.