Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Undirritun samnings Íslands um bóluefni CureVac

Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri undirritar samninginn - myndMynd: Heilbrigðisráðuneyti

Undirritaður hefur verið samningur Íslands um kaup á bóluefni lyfjaframleiðandans CureVac  gegn COVID-19 sem dugir fyrir um 90.000 einstaklinga. Vonir standa til að afhending bóluefnisins geti hafist á öðrum fjórðungi þessa árs, að undangengnu mati Lyfjastofnunar Evrópu og útgáfu markaðsleyfis en bóluefnið er nú í fasa III í prófunum. Bóluefnið er af sömu gerð og bóluefni Pfizer og Moderna, að því leyti að hluti af RNA erfðaefni veiru er notað til að vekja mótefnasvar hjá bólusettum einstaklingum. Bólusetja þarf hvern og einn tvisvar sinnum með bóluefninu til að ná fullri virkni.

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta