Hoppa yfir valmynd
5. febrúar 2021 Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Undirbúningur hafinn að stofnun Norðurslóðaseturs á Íslandi

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skipa nefnd um undirbúning að stofnun og byggingu Norðurslóðaseturs í Reykjavík sem yrði kennt við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrum forseta Íslands. Áformin eru í samræmi við tillögur Grænlandsnefndar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra en þar er lagt til að Norðurslóðasetur verði framtíðarheimili Hringborðs norðurslóða – Arctic Circle. En þær gera jafnframt ráð fyrir að náið samstarf verði á milli Norðurslóðasetursins, stjórnvalda, Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík og Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri.

Ólafur Ragnar Grímsson var hvatamaður að stofnun Hringborðs norðurslóða og hefur verið forystumaður þess frá stofnun árið 2013. Hringborð norðurslóða hefur þróast í að verða helsta aflstöð hugmynda um málefni norðurslóða en árleg þing þess eru orðin stærsta stefnumót heimsins um málefni svæðisins.

Í Norðurslóðasetri yrði aðstaða fyrir erlenda vísindamenn en jafnframt er gert ráð fyrir að setrið hýsi safn um norðurslóðir. Gert er ráð fyrir að setrið nýti sér liðsinni erlendra stofnana, sjóða og samtaka sem tengjast Hringborði norðurslóða til að styrkja fjárhagslegan grundvöll framkvæmda og reksturs.

Í nefndinni munu eiga sæti fulltrúar frá forsætisráðuneytinu, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu, mennta- og menningarmálaráðuneytinu, umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum í Reykjavík og Hringborði norðurslóða. Nefndin á að skila ríkisstjórninni tillögum fyrir 1. apríl nk.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta