Í dag héldu áfram afhendingar afrita trúnaðarbréfa og afturköllunarbréfa í embættisbústað Íslands á Bygdøy. Ingibjörg Davíðsdóttir sendiherra tók á móti sendiherra Perú, Gustavo Otero Zapata og sendiherra Eistlands, Lauri Bambus og afhentu þeir Ingibjörgu afrit trúnaðarbréfa sinna sem sendiherra Perú annars vegar og sendiherra Eistlands hins vegar gagnvart Íslandi, með aðsetur í Osló og ásamt afturköllunarbréfum forvera sinna í embætti.Efnisorð