Rúmlega 350 milljónir kr. í menningartengda tekjufallsstyrki
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra:
„Við kynntum 10 aðgerðir til stuðnings menningarlífinu í október sl., sem unnar voru í góðri samvinnu við Bandalag íslenskra listamanna. Tekjufallsstyrkirnir voru þar á meðal en einnig fjölgun starfslauna listamanna og tímabundin hækkun þeirra. Ég hvet listamenn, og þá sérstaklega þá sem starfa sjálfstætt, til þess að kynna sér úrræðið og nýta sér það.“
Samkvæmt nýjustu tölum hafa alls 126 aðilar í menningargreinum þegið tekjufallsstyrki, en það eru í flestum tilfellum sjálfstætt starfandi einstaklingar eða fyrirtæki með færri en 5 starfsmenn.
Styrkfjárhæðin tekur mið af rekstrarkostnaði og tekjufalli í hverju tilfelli en rekstraraðilar geta átt rétt á styrk sem nemur allt að 500.000 kr. á mánuði fyrir hvert stöðugildi. Hámarksstyrkur er 2-2,5 milljónir króna á mánuði. Skatturinn er framkvæmdaraðili tekjufallsstyrkja og veitir nánari upplýsingar um forsendur og skilyrði styrkveitinga. Umsóknafrestur vegna tekjufallsstyrkja er til 1. maí 2021.