Framlög til loftslagsaðgerða aukin um milljarð á ári
Framlög til loftslagsmála verða aukin um 1 ma.kr. á ári á tímabilinu 2022-2031 samkvæmt áætlunum ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram í fjármálaáætlun 2022-2026 sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í gær og er liður í að mæta hertum markmiðum Íslands um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Fjármununum verður einkum varið til aðgerða á sviði náttúrumiðaðra lausna, landbúnaðar, orkuskipta og í frekari stuðning við breyttar ferðavenjur.
Fyrir liggur á Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um skattalegar ívilnanir vegna grænna fjárfestinga. Þar er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs lækki um 1,2 ma.kr. á ári á árunum 2024-2026 vegna ívilnananna.
Hertar aðgerðir á fjórum sviðum
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er grundvöllur þeirra aðgerða sem stjórnvöld hafa sett fram til að ná markmiðum sínum í loftslagsmálum hingað til. Aðgerðirnar sem settar eru fram á grundvelli aukins framlags koma til viðbótar fyrri aðgerðum, eða eru nánari útfærsla á þeim og lúta að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og aukinni kolefnisbindingu. Aðgerðirnar eru settar fram í fjórum meginliðum:
- Náttúrumiðaðar lausnir í loftslagsmálum
Efling þess starfs sem þegar er unnið að í landgræðslu og skógrækt, vernd og endurheimt votlendis, m.a. í samstarfi við bændur og aðra landeigendur. - Loftslagsaðgerðir í landbúnaði
Loftslagsaðgerðum í landbúnaði í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum verður hraðað og þær auknar í samstarfi við bændur, einkum aðgerð E1 um loftslagsvænni landbúnað í því skyni að fjölga verulega bændum sem taka þátt í loftslagstengdum verkefnum. - Aukinn stuðningur við orkuskipti
Orkuskiptum í samgöngum á landi, hafi og í lofti verður hraðað. Í samgöngum á landi verður lögð áhersla á orkuskipti á sviði ferðaþjónustu og þungaflutninga. Styðja þarf við innlenda framleiðslu endurnýjanlegs eldsneytis til að mæta þörfum. Áframhaldandi stuðningur verður við orkuskipti í haftengdri starfsemi með bættum innviðum og nýrri tækni. - Efling umhverfisvænni almenningssamgangna og betri innviðir fyrir virka ferðamáta
Áhersla verður lögð á að efla vistvænar almenningssamgöngur með fjölgun umhverfisvænni ferðavagna og að bæta innviði fyrir virka ferðamáta, m.a. með uppsetningu hleðslustöðva.
Aðgerðirnar verða unnar í samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs og eru settar fram sem hluti af grænni endurreisn eftir kórónuveirufaraldurinn. Áherslan er á að forgangsraða verkefnum sem stuðla að mestum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. Þá verði auknum hluta framlaga til þróunarsamvinnu veitt til loftslagstengdra verkefna.
Aðgerðirnar stuðla að uppfyllingu markmiða Íslands
Forsætisráðherra tilkynnti um hert markmið Íslands í loftslagsmálum á leiðtogafundi í desember sl. Ísland hefur sett það markmið að stefna að 55% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda fram til ársins 2030, í samstarfi við Evrópusambandið og Noreg. Þá hefur Ísland einnig sett sér markmið um að ná kolefnishlutleysi árið 2040.