Ráðherrafundur samstarfsvettvangs um öryggis- og varnarmál
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í gær þátt í fjarfundi varnarmálaráðherra í sameiginlegu viðbragðssveitinni (Joint Expeditionary Force, JEF), samstarfsvettvangi líkt þenkjandi ríkja í öryggis- og varnarmálum sem Bretland leiðir.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í ráðherrafundi samstarfsins, en samkomulag um þátttöku Íslands var undirritað í London 20. apríl sl.
Á fundinum kynnti Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, nýja stefnumörkun breskra stjórnvalda í öryggis- og varnarmálum, en hún er hluti af samræmdri endurskoðaðri stefnu Bretlands sem tekur til utanríkismála, öryggis- og varnarmála og þróunarsamvinnu.
„Sú stefna sem Bretar hafa nú markað til næstu ára hefur það að markmiði að geta séð fyrir framtíðaráskoranir á sviði öryggis- og varnarmála og brugðist við þeim. Öryggisumhverfi Evrópu hefur gerbreyst á undanförnum árum og okkar nánustu bandalags- og vinaríki hafa séð sig knúin til að auka framlög sín til varnarmála, Eystrasaltsríkin og Svíþjóð eru dæmi um það. Þetta skiptir miklu máli fyrir öryggi og varnir Íslands á viðsjárverðum tímum,“ segir Guðlaugur Þór.
Staðan í Úkraínu var einnig til umræðu á fundinum, en hernaðaruppbygging Rússlands við austurlandamæri Úkraínu og á Krímskaga undanfarnar vikur hefur vakið hörð viðbrögð alþjóðasamfélagsins. „Stöðugleiki í Úkraínu er mikið hagsmunamál fyrir öryggi Evrópu. Þessi ríki eru sammála um að fylgjast verði grannt með því hvað Rússar eru að aðhafast á þessu svæði,“ sagði Guðlaugur Þór.