Hæsti styrkur Orkusjóðs um árabil: 320 milljónir í styrki til orkuskipta
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hafa ákveðið að auglýstir verðir styrkir til orkuskipta að upphæð 320 milljónir kr. af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslagsmála í ár. Um er að ræða hæstu upphæð sem sjóðurinn hefur úthlutað um árabil og eru megin áherslur nú á ný svið, svo sem þungaflutninga og vinnuvélar. Að auki býður sjóðurinn stuðning til líf- og rafeldsneytisframleiðslu og orkugeymslna. Áframhaldandi stuðningur er við uppbyggingu hleðslunets fyrir rafbíla.
Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum og verða veittir í tveimur flokkum, annars vegar til orkuskipta og hins vegar til uppsetningu hleðslustöðva.
Styrkir til verkefna á sviði orkuskipta:
- Verkefni sem minnka verulega eða skipta alveg út jarðefnaeldsneyti í framleiðslugreinum, matvælaiðnaði og sjávarútvegi, t.d. olíunotkun í þurrkurum, í dísilvélum eða við bræðslu.
- Líf- eða rafeldsneytisframleiðsla og orkugeymslur.
- Stuðningur við kaup á vistvænum sendibílum eða flutningabílum eða til uppbyggingar innviða sem stuðla að notkun endurnýjanlegs eldsneytis fyrir slík farartæki
- Stuðningur við kaup á vinnuvélum sem nota endurnýjanlegt eldsneyti.
Styrkirnir til orkuskipta geta numið að hámarki 33% af áætluðum stofnkostnaði.
Styrkir til uppsetningar hleðslustöðva:
- Veittir verða styrkir sem ætlaðir eru fyrir uppsetningu hleðslustöðva fyrir vistvæn ökutæki við gististaði og fjölsótta ferðamannastaði.
Styrkir til hleðslustöðva geta numið að hámarki 50% af áætluðum stofnkostnaði.
Orkusjóði hefur verið falin umsjón með auglýsingu og umsýslu styrkjanna. Umsóknir skulu sendar gegnum þjónustugátt Orkustofnunar: gattin.os.is.
Nánari upplýsingar: