Kristín A. Árnadóttir nýr fastafulltrúi Íslands í Vínarborg.
Kristín A. Árnadóttir sendiherra tók við stöðu fastafulltrúa Íslands í Vínarborg 1. maí s.l. Fastanefnd Íslands í Vínarborg hefur fyrirsvar gagnvart Öryggissamvinnustofnun Evrópu (ÖSE), Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni (IAEA), undirbúningsstjórn samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (CTBTO) og skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vín (UNOV) sem meðal annars fer með fyrirsvar um varnir gegn eiturlyfjum, afbrotum, mansali og spillingu (UNODC).
Utanríkisráðuneytið leggur mikla áherslu á markvissa þátttöku í varnar- og öryggissamvinnu á vettvangi ÖSE en þetta árið leiðir Svíþjóð það starf sem forysturíki. Mikilvægt starf er unnið af undirstofnunum ÖSE á sviði mannréttinda- og lýðræðis. Aðildarríki stofnunarinnar eru 57 og er Vínarborg mikilvægur vettvangur samráðs þeirra.
Kristín hefur afhent fulltrúabréf hjá framangreindum alþjóðastofnunum og átt fundi með framkvæmdastjórum þeirra. Undanfarin misseri hefur starfsemin einkennst af þeim takmörkunum sem heimsfaraldur hefur sett allri starfsemi en er nú að komast í eðlilegt horf að nýju.