Niðurstöður um úthlutun á EFTA tollkvóta 2021-2022
Föstudaginn 25. maí 2021 rann út umsóknarfrestur um EFTA tollkvótum á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss, vegna innflutnings á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx og ostum 0406.xxxx fyrir tímabilið 1. júlí 2021 – 30. júní 2022.
Samtals bárust fjórar umsóknir frá aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á nautakjöti og ostum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var á grundvelli reglugerðar nr. 542/2021.
Samtals bárust þrjú gild tilboð í tollkvótann.
Tvö tilboð bárust um innflutning á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx, samtals 15.000 kg. á meðalverðinu 1 kr./kg. Hæsta boð var 2 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 10.000 kg. á meðalverðinu 1 kr./kg.
Tvö tilboð bárust um innflutning ostum, úr vörulið 0406.xxxx, samtals 30.000 kg. á meðalverðinu 7 kr./kg. Hæsta boð var 23 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 15.000 kg. á meðalverðinu 14 kr./kg.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli umsókna:
Nautakjöt fyrir tímabilið júlí 2021 – júní 2022
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
5.000 |
Ekran hf |
5.000 |
Innnes hf |
Ostur fyrir tímabilið júlí 2021 – júní 2022
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
15.000 |
Nathan & Olsen ehf |