Gestastofu náttúruverndarsvæða komið á fót í Mývatnssveit
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, setti í dag formlega af stað uppbyggingu gestastofu á Skútustöðum í Mývatnssveit. Ríkið festi í byrjun ársins kaup á fasteigninni Hótel Gíg á Skútustöðum í Mývatnssveit sem upphaflega gegndi hlutverki barnaskóla sveitarinnar og eru breytingar á húsnæðinu hafnar.
Að breytingunum loknum mun Gígur hýsa gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs og náttúruverndarsvæða í Mývatnssveit, auk starfsaðstöðu fyrir starfsfólk þjóðgarðsins og þriggja annarra stofnana umhverfis- og auðlindaráðuneytisins; Umhverfisstofnunar, Landgræðslunnar og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn (Ramý).
Áhersla á endurnýtingu og hringrásarhagkerfi
Í stað hefðbundinnar skóflustungu að nýrri gestastofu tóku umhverfis- og auðlindaráðherra og forstjórar stofnanna fjögurra, auk sveitarstjóra Skútustaðahrepps, sér verkfæri í hönd og tóku niður hurðir á því sem áður voru hótelherbergi en munu verða skrifstofurými fyrir stofnanirnar. Hurðunum hafa þegar verið fundnar nýjar hjarir á öðrum stað í Mývatnssveit, í anda hringrásarhagkerfisins.
Allt kapp hefur verið lagt á að nýta innréttingar og innanstokksmuni í húsinu ellegar finna þeim nýjan stað eða nýtt hlutverk annars staðar. Húsið, sem áður hýsti Skútustaðaskóla, stendur á einstökum útsýnisstað við Mývatn og þóttu kaup á því hagstæður kostur fyrir ríkissjóð sem gætu um leið skapað tækifæri í Mývatnssveit. Skútustaðahreppur hefur áform um að nýta hluta af húsnæðinu undir atvinnuskapandi nýsköpun og þekkingarsetur. Einnig gefst möguleiki á að útbúa þar starfsaðstöðu fyrir opinber störf án staðsetningar, t.d. á vegum annarra stofnana ríkisins, háskóla og rannsóknaraðila.
Þjónustunet Vatnajökulsþjóðgarðs með sex meginstarfsstöðvum
Í lögum um Vatnajökulsþjóðgarð er kveðið á um lögbundin áform ríkisins um að halda úti sex meginstarfsstöðvum þjóðgarðsins sem mynda þjónustunet. Þegar hafa meginstarfsstöðvar í Ásbyrgi, Skaftafelli, á Skriðuklaustri og Hornafirði verið settar á laggirnar og bygging meginstarfsstöðvar á Kirkjubæjarklaustri er hafin. Með uppbyggingu gestastofu í Mývatnssveit er því búið að fullnusta uppbyggingu þessa mikilvæga þjónustunets Vatnajökulsþjóðgarðs.
„Á Gíg tekst okkur ekki bara að finna gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs og náttúruverndarsvæða í Mývatnssveit varanlegt heimili heldur lítur út fyrir að þarna geti orðið suðupottur hugmynda og starfstöðvar margra ólíkra stofnana“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Aðferðafræðin sem er viðhöfð við uppbygginguna á Gíg er auk þess skínandi dæmi um hringrásarhagkerfið að verki og það finnst mér sérstaklega ánægjulegt að sjá.