Ráðstefna 22.júní: Framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis: Tækifæri og áskoranir
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til ráðstefnu þriðjudaginn 22. júní kl. 13 um framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Ráðstefnan fer fram í Kaldalóni í Hörpu og er öllum opin. Á ráðstefnunni verður gerð grein fyrir nýlegri skýrslu um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi og rætt um þau tækifæri og áskoranir sem blasa við.
Dagskrá:
- Opnun: Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
- Íslenskur sjávarútvegur og fiskeldi 2030
- Erindi: Sveinn Agnarsson, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ
- Nýsköpun: Forsenda verðmætasköpunar til framtíðar
- Erindi: Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla hjá Brim
- Framtíðin: Tækifæri og áskoranir
- Erindi: Dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og ráðgjafi
- Pallborðsumræður:
- Agnes Guðmundsdóttir, markaðs- og sölustjóri Icelandic Asia og formaður félags kvenna í sjávarútvegi
- Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
- Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood
- Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi
- Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar
Fundarstjórn:
- Bergur Ebbi Benediktsson
Fundurinn verður einnig í beinu streymi: