Hoppa yfir valmynd
24. júní 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Samið um rannsóknir og vöktun Rannsóknastöðvarinnar Rifs til fimm ára

Pedro Rodrigues, forstöðumaður Rifs, Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og  Aðalsteinn Örn Snæþórsson, forstöðumaður Náttúrustofu Norðausturlands.  - mynd

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti, Norðurþing og Náttúrustofa Norðausturlands hafa gert með sér samning um rekstur Rannsóknastöðvarinnar Rifs á Raufarhöfn.

Samningnum er ætlað að stuðla að auknum rannsóknum, vöktun og fræðslu á starfssvæði náttúrustofunnar og gildir til fimm ára. Heildarskuldbinding samningsins nemur 67 m.kr. og er heildarframlag ráðuneytisins 52 m.kr. Öll gögn sem aflað verður á grundvelli samningsins verða afhent Náttúrufræðistofnun Íslands og verða öllum opin.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði samninginn fyrir hönd ráðuneytisins er hann var á ferð um Norðurland.

Rannsóknastöðin hefur það hlutverk að efla og auka náttúrurannsóknir á Melrakkasléttu, m.a. með hliðsjón af skuldbindingum Íslands í norðurslóðasamstarfi. Eins sér hún um að safna saman og miðla upplýsingum um náttúrufar á svæðinu og styðja nærsamfélagið með fræðslu og stuðningi við náttúrutengda ferðamennsku og almennri þátttöku í samfélaginu á Melrakkasléttu.

„Rannsóknir og vöktun, eins og þær sem Rannsóknastöðin Rif stuðlar að á Melrakkasléttu, eru afar mikilvægar, sérstaklega á tímum loftslagsbreytinga“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Melrakkaslétta er skilgreind sem heimskautasvæði og er mjög aðgengileg sem slík, bæði fyrir vísindamenn og almenning. Það er ánægjulegt að samningurinn gildi til fimm ár, en það gefur Rannsóknastöðinni Rifi aukinn stöðugleika og forsendur til þess að horfa fram á veginn í sínu vísindastarfi.“


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta