Embætti laust til umsóknar: Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. september 2021. Auglýsingin hefur einnig verið birt á vefnum Starfatorg.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sjúkrahúsið á Akureyri starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem veitir sérfræðiþjónustu í helstu greinum læknisfræði og hjúkrunarfræði og almenna sjúkrahúsþjónustu í sínu umdæmi. Þá annast sjúkrahúsið starfsnám í heilbrigðisvísindagreinum og starfar í nánum tengslum við skóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins, varasjúkrahús Landspítala og er með alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni. Að jafnaði eru tæplega 700 manns starfandi á SAk.
Hæfniskröfur
Forstjóri skal hafa:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er áskilin.
- Mikla þekkingu á sviði heilbrigðisþjónustu.
- Farsæla reynslu af stjórnun, rekstri og mannaforráðum.
- Þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu.
- Hæfni og reynslu til stefnumótunar.
- Menntun og/eða reynslu á sviði verkefnastjórnunar og stöðugra umbóta.
- Mjög góða hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Metnað og vilja til að ná árangri.
- Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góða kunnáttu í ensku og kunnáttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli.
Kostur er að umsækjandi hafi þekkingu á fjármálum hins opinbera.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Hæfni umsækjenda verður metin af hæfnisnefnd skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu. Um laun forstöðumanns fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri, [email protected]
Umsóknir skulu berast heilbrigðisráðuneytinu, í gegnum ráðningarkerfi ríkisins eða á netfangið: [email protected] eigi síðar en 12. júlí nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.07.2021
Nánari upplýsingar veitir
Ásta Valdimarsdóttir - [email protected]
Kristín Helgadóttir - [email protected]