Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins
Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins nr. 600/2021, er hér með auglýst eftir umsóknum um eftirfarandi tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 16. september – 31. desember 2021:
Vöruliður: |
Vara |
Tímabil |
Vörumagn |
Verðtollur |
Magntollur |
---|---|---|---|---|---|
kg |
% |
kr./kg |
|||
0201/0202 |
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst |
16.09. - 31.12.21 |
232.000 |
0 |
0 |
0203 |
Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst |
16.09. - 31.12.21 |
234.000 |
0 |
0 |
0207 |
Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst |
16.09. - 31.12.21 |
286.000 |
0 |
0 |
ex0207 |
Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu |
1.09. - 31.12.21 |
66.000 |
0 |
0 |
0210 |
Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum |
16.09. - 31.12.21 |
34.000 |
0 |
0 |
ex 0406 |
Ostur og ystingur (**) |
16.09. - 31.12.21 |
76.000 |
0 |
0 |
0406 |
Ostur og ystingur |
16.09. - 31.12.21 |
126.000 |
0 |
0 |
1601 |
Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum |
16.09. - 31.12.21 |
84.000 |
0 |
0 |
1602 |
Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum |
16.09. - 31.12.21 |
134.000 |
0 |
0 |
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, verður leitað tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(**) en auglýstum tollkvóta nemur verður tollkvótanum úthlutað eftir hlutkesti. Úthlutun er ekki framseljanleg. Vörumagni vegna ársins 2021 er úthlutað í þrennu lagi, þ.e. því er skipt upp í 1/3 hluta fyrir hvert tímabil ársins.
Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við ráðuneytið í síma 545-9700 eða á [email protected]. Sjá eftirfarandi ítarefni vegna úthlutunar tollkvóta.
Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is þann 26. júlí og skulu umsóknir berast fyrir kl. 16.00, mánudaginn 9. ágúst 2021.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,
26. júlí 2021
Ítarefni:
- Leiðbeiningar (pdf)
- Reglugerð
- Vefkerfi fyrir úthlutun tollkvóta (pdf)