Kosning utan kjörfundar getur hafist föstudaginn 13. ágúst
Kosningar til Alþings fara fram 25. september 2021 og getur kosning utan kjörfundar hafist föstudaginn 13. ágúst 2021.
Innanlands fer kosning utan kjörfundar fram hjá sýslumönnum um allt land, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Þá getur sýslumaður einnig ákveðið að atkvæðagreiðsla fari fram á sérstökum kjörstað í umdæminu. Nánari upplýsingar verður að finna á vefsvæði sýslumanna syslumenn.is.Erlendis fer kosning utan kjörfundar fram á skrifstofu sendiráðs, í sendiræðisskrifstofu eða hjá kjörræðismanni samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur þó ákveðið að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fari fram á öðrum stöðum erlendis. Kjósendum er bent á að hafa samband við sendiskrifstofur og/eða sendiherra sem hafa yfirlit yfir hvar er unnt er að kjósa. Vegna þess ástands sem ríkir í heiminum vegna COVID-19 farsóttarinnar geta þau tilvik komið upp, vegna sóttvarnaráðstafana stjórnvalda á hverjum stað, að aðgengi kjósenda að kjörstöðum erlendis verði takmarkað.