Afmælisgjöf til menningarhússins Hofs
Ríkisstjórn Íslands og Akureyrarbær tilkynntu í dag um sameiginlega gjöf til menningarhússins Hofs á Akureyri en haldið var upp á fyrsta áratug starfseminnar þar í dag.
Afmælisgjöfin er nýr og vandaður ljósabúnaður sem mun prýða salinn Naust. Við teikningu Hofs var lögð áhersla á fallega lýsingu í sölum þess, en því miður reyndist ekki unnt að klára kaup á ljósum í Naust við lok byggingaframkvæmda. Úr því verður nú bætt.
Salurinn er notaður í margvíslegum tilgangi, þar á meðal sem fordyri Hamraborgar. Kostnaður við gjöfina nemur ríflega fimm milljónum króna og er hún fjármögnuð með 3 milljóna króna framlagi af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar og 2,5 milljóna króna framlagi Akureyrarbæjar. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tilkynnti um gjöf ríkisins í dag og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, greindi frá framlagi sveitarfélagsins þegar haldið var upp á 10+1 árs afmæli menningarhússins með hátíðardagskrá í Hofi.
Frá opnun hússins hefur það verið vettvangur fjölbreyttrar menningarstarfsemi á Akureyri, er heimahöfn Menningarfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, auk þess að hýsa ráðstefnur, veislur og aðra viðburði stóra og smáa.