Störf án staðsetningar - staða og framtíðarhorfur
Skýrsla um stöðu og framtíðarhorfur verkefnisins Störf án staðsetningar, gefin út á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytis, forsætisráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis í september 2021.
Verkefnið er hluti af byggðaáætlun 2018-2024 en í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að ráðuneytum og stofnunum þeirra verði falið að skilgreina störf og auglýsa þau án staðsetningar eins og kostur er, þannig að búseta hafi ekki áhrif við val á starfsfólki. Markmið verkefnisins er að efla byggðir landsins og að sporna við fækkun íbúa á einstökum svæðum og gera atvinnulíf fjölbreytilegra.