Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs kynntar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti í Norræna húsinu í dag hverjir hljóta tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs árið 2021.
Meðal þeirra verkefna sem hljóta tilnefningu að þessu sinni eru gagnagrunnur sem sýnir kolefnisspor matvæla, sjálfbær landbúnaður sem bindur kolefni í jörðu og gróðurhús á Grænlandi sem sér veitingastöðum og íbúum fyrir ferskum matvörum. Þema verðlaunanna í ár er Sjálfbær matvælakerfi – sjálfbært úr hafi og jörð á borð og aftur til baka og endurspegla tilnefningarnar norrænar lausnir í vinnunni við að byggja upp sjálfbært matvælakerfi sem gagnast líffræðilegri fjölbreytni, umhverfi og loftslagi.
Lars Hindkjær, formaður dómnefndarinnar segir verkefnin átta sem tilnefnd eru sýna hvert á sinn hátt hvernig sjálfbærara matvælakerfi getur leitt af sér breytingar til bóta á umhverfi okkar og loftslagi.
Tilnefningu hljóta:
Danmörk
Gagnagrunnurinn Den store klimadatabase, frá grænu hugmyndasmiðjunni CONCITO í Danmörku, sem veitir samfélaginu og almenningi innsýn í kolefnisspor hinna ýmsu matvæla.
Finnland
Samstarfsnetið Carbon Action, sem stendur fyrir rannsóknum til þess að auka sjálfbærni matvælaframleiðslu og landbúnaðar.
Færeyjar
Matkovin, sem er stafrænn vettvangur sem styður staðbundna matvælaframleiðslu í Færeyjum.
Grænland
Greenlandic Greenhouse, sem er með sjálfbæra grænmetisræktun í gróðurhúsi í Nuuk og veitir með því aðgengi að mat úr héraði.
Ísland
Thor Ice Chilling Solutions, fyrir tæknilausn sem hraðar kælingu matvæla, dregur úr matarsóun og eykur geymsluþol.
Noregur
Félagasamtökin Framtiden i våre hender, fyrir þróun þekkingar sem byggð er á staðreyndum um áhrif sjálfbærni á framleiðslu og neyslu matvöru.
Svíþjóð
Svensk Kolinlagring fyrir umskipti til sjálfbærs landbúnaðar gegnum miðlun þekkingar, rannsóknir og hagnýta reynslu.
Álandseyjar
Mjólkurbúið Mattas Gårdsmejeri fyrir framleiðslu á lífrænum osti, jógúrt og fleiri mjólkurvörum.
Handhafi verðlaunanna verður kynntur 2. nóvember 2021 á verðlaunahátíð Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn.