Hoppa yfir valmynd
30. september 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Sýklalyfjanotkun fólks hefur dregist saman um 30% á fjórum árum

Heildarnotkun sýklalyfja í heilbrigðiskerfinu hefur dregist saman um 30% á fjórum árum þegar tekið er mið af heildarsölu sýklalyfja hér á landi, mæld í daglegum lyfjaskömmtum á hverja 1.000 íbúa (DID). Heildarsalan var um 24 DID árið 2017 en var komin niður í um 16 DID árið 2020. Notkunin er þó enn töluvert meiri hér en annars staðar á Norðurlöndunum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri ársskýrslu embættis landlæknis um sýklalyfjanotkun árið 2020.

Mest minnkaði sala sýklalyfja milli áranna 2019 og 2020. Í tilkynningu embættis landlæknis um skýrsluna og niðurstöður hennar segir að ástæður fyrir minnkandi notkun sýklalyfja hjá mönnum hér á landi á árinu 2020 geti verið fjölmargar. Bent er á að árið 2020 voru viðamiklar samfélagslegar og einstaklingsbundnar sóttvarnaaðgerðir í samfélaginu vegna COVID-19. Þessar aðgerðir leiddu til fækkunar á sýkingum almennt, sérstaklega öndunarfærasýkingum, sem vafalaust leiddi til minni notkunar sýklalyfja. Einnig hafi á undanförnum árum verið viðhafður áróður um skynsamlega notkun sýklalyfja.

Markvisst er unnið að því að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis og einn mikilvægasti þátturinn í þeirri vinnu er að stuðla að skynsamlegri notkun sýklalyfja, bæði hjá mönnum og dýrum, segir í tilkynningu embættis landlæknis.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta